B6 (heila-, tauga- og bæklunarskurðdeild) sinnir sjúklingum eftir aðgerð á heila, mænu og taugum auk þjónustu við sjúklinga með stoðkerfisvandamál og eftir liðskiptaaðgerðir.
A4 (HNE, lýta- og æðaskurðdeild) sinnir þjónustu við einstaklinga sem fara í uppbyggingu á brjóstum og aðgerðum vegna ýmis konar lýta, meðfæddra útlitsgalla, húðkrabbameina og uppbyggingar á brjóstum. Einnig sinnir deildin meðferð alvarlegra brunasára á landsvísu. Á deildinni liggja einnig sjúklingar eftir aðgerð á hálsi, nefi og eyrum, æðum og eftir atvikum einnig sjúklingar eftir liðskiptaaðgerðir.
Vöknun Fossvogi er á E6 gangi og veitir þjónustu sjúklingum sem eru að ná sér fyrstu 4 - 6 klst eftir skurðaðgerð.
Gjörgæsludeild Fossvogi er einnig á E6 gangi og veitir almenna gjörgæslumeðferð.
|
|